Gæsanir & Steggjanir

Þegar það á að gæsa/steggja er alltaf best að heyra í Lalla og fá hann til að hrista upp í gleðinni.
Hér eru dæmi um algengustu útfærslurnar þegar Lalli
kemur í gæsanir/steggjanir:
Steggjun:
- Töfrasýning þar sem steggurinn er fenginn til að aðstoða Lalla meirihlutann af sýningunni.
- Létt og skemmtilegt Pub Quiz.
- Dómarapása þar sem Lalli fer yfir úrslitin í pubquiz´inu OG kennir steggnum töfrabrögð.
- Steggur með töfrasýningu ...og já, að sjálfsögðu fær hann skikkju og pípuhatt.
- Pub Quiz Verðlaunaafhending
Gæsun:
- Töfrasýning þar sem gæsin er fenginn til að aðstoða Lalla meirihlutann af sýningunni.
- Tónlistarbingó og söngur ...vanalega með skvísuþema
- Stutt pása ...Lalli kennir gæsinni töfrabrögð eða velur með henni lag til að syngja.
- Gæsin heldur töfrasýningu EÐA tónleika ...syngur lag eða tvö með Lalla á gítarnum.
ATH:
Að sjálfsögðu er í boði að breyta útfærslunni því það er ALLT í boði!
Lengd á svona uppákomu er vanalega um 60min.























