top of page

Hinn eini sanni Lalli töframaður er mættur aftur í Tjarnarbíó með glænýja sýningu!

Í gegnum árin hafa sýningar Lalla í Tjarnarbíó heldur betur slegið í gegn á meðal áhorfenda og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir frumlega og skemmtilega nálgun á leikhúsið.

,,Töfri Töfri” er fjölskyldu og barnasýning ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa, enda er sýningin stútfull af töfrum, gríni og gleði fyrir ÖLL.!!!

 

Lalli var 5 ára gamall þegar hann fékk fyrst áhuga á töfrum.

Í þessari sýningu býður hann áhorfendum í skemmtilegt ferðalag í gegnum líf sitt og alla þá töfra sem hafa á vegi hans verið.

Vinur Lalla mun einnig koma við sögu en það er enginn annar er áhættuatriða-þvottabjörninn hann RINGÓ!

Áhorfendur fá að kynnast Ringó á mjög sérstakann hátt, því þeir munu heyra hvað Ringó þvottabjörn er að hugsa …en það er gert með glænýju og háþróuðu tækni-töfra-tæki sem Lalla töframaður hefur fundið upp og nefnist ,,Töfrandi tjáninga tækni tæki töframanns”.

 

Ef þér finnst gaman að hlæja, láta koma þér á óvart og eiga skemmtilega stund að þá er sýningin ,,Töfri Töfri” með Lalla töframanni fullkomin sýning fyrir þig og þitt fólk.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Lengd sýningar: 50 min
Leikarar og handrit: Lárus Blöndal & Stefán Ingvar
Leikstjórn: Stefán Ingvar
Hljóð: Kristín Waage 
Lýsingarhönnuður : Ásta Jónína
Dramatúrg: Jónsi Hannesson
Búningar: Elma Bjarney
Leikmynd,sjónhverfingar og töfrar: Lárus Blöndal

Sýningin er ætluð leikhúsgestum frá leikskólaaldri og allt upp í langömmur og langafa

Tryggið ykkur miða STRAX á tix.is

bottom of page